Tuesday, October 16, 2007

Totally Pointless Post

Ég er búinn að vera í prófum núna í circa viku. Þessi vika kallast yfirleitt midterm week eða bara midterms, en það þýðist yfir á íslensku sem miðannar próf. Þannig að seinast helgi var frekar róleg. En það er allt í lagi því að helgina þar á undan fórum við á bar og klúbb niðri í bæ. Ódinn og jaime komu og sóttu mig og við fórum og hittum Cristian Kruse niðrí Yaletown en hann var þar með geðveika íbúð í láni. Kruse eins og hann er kallaður er danskur en alinn upp í Svíþjóð, hann vann á Íslandi í tæp tvö ár og talar ágæta íslensku. Hann er búinn að búa í Whistler síðan byrjun des í fyrra og verður til 1 jan. Svo þegar við fórum út, þá fórum við a Granville street og hittum þar Eric og Damon fálaga okkar Odinns úr hljómsveitinni A grey medium og var þetta hið fínasta kvöld. þetta er fjórða skiptið sem að ég fer á klúbb hér síðan að ég flutti hingað þannig að það er nokkuð ljóst að ég er ekki að djamma frá mér allt vit. Ég sakna þess samt að djamma með vinum mínum frá Íslandi. Ok ég ættla að umorða þetta aðeins ...ég sakkna ekki beint að djamma, ég sakkna meira bara fyllerís bullsins með vinum mínum heima.

Sunday, October 14, 2007

Of bloggaði mig

Mér finnt allveg glatað hvað ég er lélegur að skrifa hérna. Ég held að ég hafi nefnileganna sprengt mig á bloggi um daginn. En þá var ég að skrifa tólistarblogg í tilefni Airwaves. Það fór meiri tími og vinna í það en ég var búinn að áættla. Pælingin var að setja saman lista yfir erlenda tónlist sem að mér finnst spennó á Airwaves. Andri og Egill ættluðu svo að hittast 5 okt þegar ég átti afmæli, fá sér bjór og fara í gegnum þetta sem að þeir svo og gerðu. Klúðrið var aðalega hjá mér að setja svona mikinn metnað í þetta og það er ástæðan frir því að ég of bloggaði.
Ég mun passa að þetta komi ekki fyrir aftur það er að segja ég mun ekki láta önnur blogg koma upp á milli okkar.
Hér er samt hitt bloggið http://djreynar.blogspot.com/

Friday, October 5, 2007

YO! YO!

Ég á afmæli í dag.......

Thursday, October 4, 2007

Shit ...ég sá þetta í dag og vá mér finnst það geðveikt flott



My Girlfriend Beats Me

Add to My Profile | More Videos