Sunday, September 30, 2007

Benni er æði!

Á föstudaginn var hringdi ég heim í hann Benna vin minn. Ekkert smá gaman að heyra í drengnum og það sem meira er, hann er að plana heimsókn til Bresku Kólumbíu þ.e.a.s. til mín ….veivei. En ég og hann vorum aðeins að ræða þetta blogg hér sem að er kanski ekki frásögufærandi nema að Benni er sá eini sem að veit af þessu. Þannig ég gæti svo sem bara skrifað þetta beint til hans nema það er ekki eins skemmtilegt því að þá mundi bloggið missa þennan þriðjupersónu sjarma sem það hefur ….hahahahahha. Svo er líka planið að leyfa Þolla jafnvel líka að lesa þetta og þá gengur ekki að tala blogginu beint til Benna. Ég vona samt að ég geti haldið þessu úti með reglulegum frásögnum. Svo í fullkomnum heimi þá mun Benni einhverntíman vera að tala við Andra Már og segja honum eitthvað sem að hann hafi lesið á blogginu hans Reynars og þekkjandi Andra svakalega vel þá verður hann ekki ánægður með það að Benni sé eitthvað að lesa bloggið mitt en hann fái ekki einu sinni að vita af því. En það besta verður þegar Andri mun spurja um hvar bloggið sé og Benni segist ekki meiga segja honum það hahahahahahahhaahahha því að það mun allveg fara með hann.

Auðvitað væri það meira hvetjandi fyrir mig að setja in reglulegar færslur, vitandi af fullt af fólki lesandi pistlana mína, maður fengi kanski comment og hvatningar. En þar sem ég er skelfilegur penni og hrottalega lesblindur þá er ég ekkert sérstaklega spentur fyrir því að auglýsa þetta. En svo sagði Benni mér reyndar að hann læsi þetta á hvejum degi hvort sem það væri eitthvað nýtt eða ekki. Benni þú ert yndi

No comments: