Sunday, September 30, 2007

veikur við ritgerðasmíðar

Ok ég er búinn að eiga geðveikt leiðinlega helgi, ég átti semsagt að gera slatta stóra ritgerð um helgina og núna þegar að þetta er skrifað er ég enn en að reyna mixa þessa ritgerð. En talandi um helgina, málið er að ég er búinn að vera geðveikt rólegur undanfarið. Ég hef í raun og veru ekki gert neitt síðan um miðjan ágúst. Svo ég var búinn að plana að kíkja aðeins út um helgina en það var búið að bjóða mér í afmæli hjá honum Brent II og svo var Odinn vinur minn að koma heim eftir að hafa verið að vinna úti á landi í rúma tvo mánuði og hann var með party á laugardaginn. En nei ég fékk einhverja ömurlega hitaflensu og er búinn að liggja í hita mollu og í ógeðs svita kasti alla helgina.

No comments: